Description
Skycamp 3.0 er þriggja til fjögurra manna harðskeljatjald. 3.0 er þriðja kynslóð af Skycamp línunni frá iKamper. En fyrri kynslóðir hafa unnið til Red Dot hönnunarverðlaunana síðustu ár.
- Tekur aðeins 1 mínútu að tjalda.
- Hægt að geyma svefnpoka og kodda í skelinni þegar þú ferð á næsta áfangastað.
- Ný svefndýna (6,5 cm) með 9 svæða svefnstuðningi sem dreyfir líkamsþyngd betur og eykur þægindi. Botn dýnunnar er endurhannaður til að sporna við myglumyndun í ákveðnum aðstæðum.
- Framúrskarandi vind og vatnsheldni. Tjaldið er með dökkum poly–bómullar dúk sem tryggir myrkur og andar vel.
- Tjaldið er matt svart á litinn.
- Þriggja laga opnanlegir gluggar í hliðum og í lofti, sem hægt er að nota eftir aðstæðum.
- Hliðargluggar endurhannaðir með nýjum rennilásum, sem einfaldar að opna og loka öllum lögunum. Einnig hægt að nota ysta lag sem gardínu með einu handtaki innan frá.
- Læsingar, svo ekki sé hægt að opna tjaldið.
- Endurbættir YKK rennilásar sem gerir þá bæði sterkari og áreiðanlegri.






