UBCO 2x2 ADV rafbifhjól

Skemmtilegt hjól með drif á báðum hjólum. Götuskráð og tilbúið í ævintýri, bæði á malbiki og utan vegar. Fullkomið fyrir helgarbrölt í náttúrinnni.

990.000 kr.1.090.000 kr.

Description

Skemmtilegt hjól með drif á báðum hjólum. Götuskráð og tilbúið í ævintýri, bæði á malbiki og utan vegar. Fullkomið fyrir helgarbrölt í náttúrinnni.

Hjólið hefur drif á báðum hjólum sem gerir það fullkomið fyrir íslenskt umhverfi. Hjólið er með sjálfstæðar tveggja þrepa rafmagnsbremsur sem endurheimta bremsuorkuna og hlaða inn á rafhlöðuna og einnig hjálpar kerfið við að halda góðri stjórn á hjólinu.

Hjólið er auðvelt í akstri þökk sé sterka SuperX rammanum og lágum þyngdarpunkti út frá staðsetningu rafhlöðunnar. Stillanleg fjöðrun hámarkar nýtingu hjólsins við allar aðstæður.

Bygging hjólsins auðveldar flutning. Auðvelt er að henda því aftan á jeppann og komast þannig sem næst áfangastaðnum á vegi og nota síðan hjólið til þess að fara þangað sem bíllinn kemst ekki.

Þar sem hjólið er rafdrifið þá er engin kúpling eða gírskipting og er því auðvelt fyrir hvern sem er í notkun. Einnig er hjólið með rafmagnsdrif á báðum hjólum sem gerir það öflugt í slóðaakstri.

Hjólið hefur góða LED lýsingu fyrir kvöldferðarnar og vetrarævintýrin. Einnig er góð læsing á hjólinu, notast er við lykil til að kveikja á því og rafhlöðurnar læsast einnig við hjólið þegar þau eru sett í hólfið sitt.

Almenn tæknilýsing

  • Rafhlaða: 2.1kWh
  • Þyngd: 65.7kg
  • Hámarkshraði: 45km/h
  • Hámarks drægni: 65-85km
  • Hleðslutími : 4 klukkutímar
  • Inniheldur hraðhleðslutæki

Additional information

Stærð rafhlöðu

2.1kWh, 3.1kW

Innskráning

Ertu ekki með aðgang? Búa til aðgang